Davíð sigraði á KR Super Challange
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson gerði sér lítið fyrir og sigraði á KR Super Challange í gærkvöldi. Í Super Challenge keppa átta bestu tímar úr undanrásumí 50m flugsundi til úrslita með útsláttarfyrirkomulagi, Davíð synti á mjög góðum tíma í lokaumferðinni 25.50, en aðeins einn ÍRB meðlimur hefur synt á betri tíma. Örn Arnarson gerði það árið 2003, synti þá á 25.02 en sá tími var þá nýtt íslandsmet í greininni.Glæsilegur árangur hjá "Dabba Kóngi ". Samkvæmt heimildum okkar þá hefur Örn Arnarson verið eini íslendingurinn sem sem fagnað hefur sigri í þessari keppni, þannig að nýr kafli er greinilega að hefjast í sögu KR Super Challange. Næst áfangi hjá Davíð er því bara að taka íslandsmetið í greininni.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson