Fréttir

Sund | 28. ágúst 2011

Ekki missa af okkur! Skráðu þig í dag ;)

Nú eru 2/3 hluti plássa í nánast öllum hópum full, nýjar skráningar bætast við á hverjum degi og biðlistar eru í tvo hópa.

Viðbrögð þeirra sem hafa komið á matsdögum til okkar eru góð. Við höfum heyrt að fólk sé ánægt með þetta nýja skipulag þar sem börnin eru sett í hóp sem hæfir getu barnsins best svo það geti tekið fullan þátt og notið þess enn betur að æfa sund. Vel hefur gengið hjá nýjum þjálfurum og höfum við heyrt ánægjuraddir segja að þjálfarahópurinn okkar sé frábær í ár.

Við hlökkum til að fá fleira fólk til liðs við okkur og verða hluti af þessu frábæra liði!