EM 25 lágmark, NMU lágmark og frábært meyjamet.
Frábær árangur og góð stemming einkenndi lið ÍRB á Cheeriosmóti SH um helgina. Góðar bætingar voru í gangi hjá okkar fólki og lofar það góðu fyrir komandi vetur. Það sem hæst bar um helgina var:
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson náði lágmörkum í 100m baksundi fyrir EM 25 sem fram fer í Istanbul í desember. Gunnar Örn Arnarson náði lágmörkum í 200m bringusundi og 200m fjórsundi fyrir NMU sem fram fer í Bergen í desember. Ólöf Edda Eðvarðsdóttir hélt áfram að slá íslandsmetin í meyjaflokki, en hún setti glæsilegt íslandsmet meyja í 100m bringusundi þegar hún synti á 1.17.95, gamla metið átti Lára Hrund Bjargardóttir 1.18.58 frá árinu 1993, jafnframt setti Ólöf Edda fjögur ný innanfélagsmet. Þrír sundmenn náðu lágmörkum fyrir sérstakt félagsverkefni. Verkefnið er þátttaka á einu World Cup móti , í World Cup mótaröð FINA. Keppt verður í Stokkhólmi þann 10. - 11. nóvember nk. Þeir sundmenn sem náðu þessum lágmörkum voru: Jóna Helena Bjarnadóttir í 400m fjórsundi, Soffía Klemenzdóttir í 200m fjórsundi og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson í 100m baksundi.
Ólöf Edda Eðvarðsdóttir hress og kát á SH mótinu
Sundmenn og foreldrar: Til hamingju með flotta helgi:-) Stjórn og þjálfara.
Í flokki stighæstu einstaklinga á mótinu þá áttum við fullt af fólki í hinum ýmsu flokkum.
Í meyjaflokki:1. sæti Ólöf Edda Eðvarðsdóttir og 3. sæti Íris Ósk Hilmarsdóttir
Í sveinaflokki: 2. sæti Baldvin Sigmarsson
Í drengjaflokki: 2. sæti Einar Þór Ívarsson
Í stúlknaflokki: 3. sæti Jóna Helena Bjarnadóttir
Í piltaflokki: 2. sæti Gunnar Örn Arnarson
Gunnar Örn Arnarson hress með stigaverðlaunin, Steindór svekktur því hann fékk ekkert.
Þeir sem keppa á World Cup fyrir ÍRB.
Soffía Klemenzdóttir, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson og Jóna Helena Bjarnadóttir.