Fréttir

Sund | 1. október 2008

Erla Dögg á topp 100 allra tíma í Evrópu

Nú nýlega birti swimrankings.net lista yfir bestu afrek allra tíma í Evrópu í 25 og 50m metra laug í öllum sundgreinum.

 

Þegar kíkt er á listann þá er ánægjulegt að sjá að við ÍRB-ingar eigum fulltrúa þar.

Erla Dögg Haraldsdóttir er á listanum í þremur greinum, ein íslenskra sundkvenna. Í 100m bringusundi er hún nr. 59 , í 200m bringusundi nr. 63 og 100m fjórsundi nr. 75.

Aðrar íslenskar sundkonur sem eru á listanum eru: Ragnheiður Ragnarsdóttir í 50m skriðsundi nr. 77 og 100m fjórsundi nr. 100. og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir nr. 79 í 50m flugsundi. Í 50m laug þá er ein íslensk sundkona á topp 100 en það er Ragnheiður Ragnarsdóttir í 50 skrið nr. 83.

 

Í karlaflokknum þá eru einungis þrjú nöfn, og þar ber Örn Arnarson höfuð og herðar yfir aðra íslenska sundmenn. Í 25m lauginni þá er hann nr. 73 í 100 skrið, nr. 100 í 200 skrið, nr. 12 í 50 bak, nr. 10 í 100 bak, nr. 45 í 400m fjórsundi, 33 í 200 fjór og 25 í 100 fjór  og í 50m lauginni þá er stað hans svona, 50m bak nr. 37 100 bak nr. 19 og 200 bak nr. 17 50 flug nr. 31 og 100flug nr. 77. Jakob Jóhann Sveinsson er í 25m lauginni nr. 91 í 100m bringu og nr. 64 í 200m bringu og í 50m lauginni er hann nr. 97 í 100m bringu og nr. 80 í 200m bringu.

Hjörtur Már Reynisson er síðan nr. 80 í 50m flugsundi í 50m laug.