Fréttir

Sund | 26. nóvember 2007

Erla Dögg framarlega á Evrópulistanum

Í nýútgefnum afrekalista Evrópu þá kemur í ljós að íslandsmet Erlu Daggar Haraldsdóttur á nýafstöðnu íslandsmóti skipa henni framarlega í Evrópu. Í 100m fjórsundi þá er hún í 16. sæti á listanum, í 50 og 100m bringusundi þá er hún í 28. sæti og í 200m fjórsundi þá er hún í 35. sæti. Hún er jafnframt fremst íslenskra sundkvenna á þessum lista.