Fréttir

Sund | 26. október 2007

Erla Dögg sigraði á danska meistaramótinu

Erla Dögg Haraldsdóttir fylgdi eftir glæsilegum árangri sínum í gær með sigri í 100 metra bringusundi á danska meistaramótinu í dag.  Erla Dögg háði harða baráttu við danska meistarann, Louise Jansen og náði með miklu harðfylgi að sigla fram úr henni á síðustu 25 metrunum og tryggja sér sigur í sundinu.  Sannarlega glæsilegur árangur.  Árni Már Árnason og Birkir Már Jónsson komust einnig í úrslit og stóðu sig ágætlega.  Mótið heldur áfram á morgun og mun okkar fólk án nokkurs vafa láta að sér kveða.