Erla Dögg syndir á NCAA!
Erla Dögg Haraldsdóttir hefur verið valin til þess að synda á NCAA en það er efsta deild í landskeppni Bandarískra háskóla í sundi. Þetta er frábær árangur en Erla verður fyrsta sundkonan í sögu háskóla síns til þess að komast á mótið.
Við í ÍRB erum afar stolt henni og óskum Erlu velfarnaðar í keppninni.
http://www.odusports.com/sports/c-swim/spec-rel/030211aaa.html