Fréttir

Sund | 11. júlí 2011

Erla í undirbúningi fyrir Heimsmeistaramót í Shanghai

Erla Dögg er þessa dagana að æfa með öðrum úr landsliðinu í Singapore í undirbúningi fyrir mestu keppni sem haldin er á þessu ári-Heimsmeistaramótið í Shanghai, Kína (World Long Course Championship). Erla mun keppa í 200 fjór og 50 bringu en hún á Íslandsmetið í báðum þessum greinum. Erla stoppaði á Íslandi í nokkra daga áður en hún flaug áfram til Singapore, það er alltaf gaman að hafa hana með á æfingum. Við óskum henni góðs gengis og fylgjumst af áhuga með því hvernig henni gengur.
 
Hér er slóð á vefsíðu Heimsmeistaramótsins: http://www.shanghai-fina2011.com/en/
 
Gangi þér vel Erla!