Fréttir

Færni og boðsund á æfingadegi 3
Sund | 26. apríl 2015

Færni og boðsund á æfingadegi 3

 

Þriðji og síðasti stóri æfingadagurinn á þessu tímabili var haldinn í gær. Þar komu saman sundmenn úr Sprettfiskum, Flugfiskum og Sverðfiskum í undirbúningi fyrir Landsbankamót. 

Þjálfararnir Helga, Hjördís og Ólöf sáu um þjálfunina og Anthony yfirþjálfari stýrði æfingunni. 

Æfingin endaði á mögnuðu 13x25 m boðsundi sem endaði þannig að aðeins 5 sekúndur skildu liðin að. 

Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt, sérstakar þakkir fá þjálfararnir.