Fréttir

Sund | 8. mars 2012

Fimm mikilvægustu vikur ársins!

Niðurtalning í ÍM50 heldur áfram-fimm mikilvægustu vikur ársins.

Næstu fimm vikur frá næsta mánudegi eru mikilvægustu fimm vikur ársins hjá elstu sundmönnunum okkar. Nú tekur við erfiðasta æfingartímabil ársins og stendur það yfir næstu þrjár vikurnar. Í kjölfarið syndum við niður og er það lokaundirbúningur fyrir ÍM50. Með jákvæðu viðhorfi sundmanna og foreldra er hægt að gera ótrúlega hluti á þessum tíma.


Foreldrar og sundmenn eru hvattir til þess að sjá til þess að sundmenn mæti á þann fjölda æfinga sem mælt er með þessar vikur, nýti sér að fullu þær æfingar sem í boði eru og taki frá meiri tíma á hverjum degi í svefn og hvíld.


Við erum með bestu aðstöðuna, bestu þjálfarana og bestu sundmennina-nú er tíminn til þess að gera eitthvað úr þessu!


Full þáttaka næstu fimm vikurnar – það verður mjög spennandi að sjá hvað við getum gert ef allt liðið stekkur á vagninn!