Finn arangur hja okkar folki a Smathjodaleikunum
Okkar folk er ad gera goda hluti a Smathjodaleikunum asamt odru sundfolki. Afram Island :-)
Sja frett af heimasidu SSI
Íslandsmet og þrjú gull. |
![]() |
![]() Jóhanna Gerða Gústafsdóttir, 200 metra baksund kvenna silfurverðlaun og nálægt sínum besta tíma. Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, 200 metra baksund karla, silfurverðlaun og einnig mjög nálægt sínum besta tíma. Sindri Þór Jakobsson, 200 metra flugsund karla, gullverðlaun, mótsmet og Íslandsmet. Ragnheiður Ragnarsdóttir, 100 metra skriðsund kvenna, gullverðlaun og tvöfalt mótsmet þe bæði í undanrásum og úrslitum. Ragnheiður var alveg við sinn besta tíma. Árni Már Árnason 100 metra skriðsund karla, bronsverðlaun og bæting á besta tíma. Í 200 fjórsundi var það Hrafnhildur Lúthersdóttir sem vann gullverðlaun setti mótsmet og bætti sinn besta tíma og Erla Dögg Haraldsdóttir vann silfurverðlaun á sínum besta tíma á árinu. Birkir Már Jónsson bætti tíma sinn í 200 metra baksundi verulega. Inga Elín Cryer bætti tímann sinn í 200 metra flugsundi um tæplega 7 sekúndur og lenti í fjórða sæti, einungis 5/100 frá verðlaunasætinu. Ingibjörg Jónsdótti bætti sinn tíma í 100 metra skriðsundi og synti glæsilega og alveg eftir áætlun. Bragi Þorsteinsson var við sinn besta tíma í 100 metra skriðsundi. Jakob Jóhann Sveinsson var dæmdur úr leik í 200 metra fjórsundi en hafði náð þriðja sætinu í sundinu. Íslenska liðið var sammála um að þessi dómur hefði verið frekar vafasamur, en ekki þýðir að deila við dómarann. Hápunktur dagsins var tvímælalaust Íslandsmet Sindra Þórs Jakobssonar í sundi sem hann stjórnaði og leiddi frá upphafi til enda þrátt fyrir mikla keppni. Hann sagði eftir sundið að úr því að forseti Íslands væri að horfa hefði hann ákveðið að vinna keppnina og setja met. Forseti Íslands og frú ásamt forseta ÍSÍ og fleirum heiðruðu sundfólkið með nærveru sinni og höfðu gaman af. Myndin hér til hliðar sýnir Sindra Þór nýkominn af verðlaunapalli og forseta Íslands hr. Ólaf Ragnar Grímsson þar sem þeir fagna saman árangri Sindra. |