Fréttir

Sund | 7. október 2010

Fjallganga /Þorbjörn/ Hákarlar og Höfrungar

 

 

Ágætu sundmenn og foreldrar Hákarla og Höfrunga. Á fimmtudaginn 07. október þá ætlum við þá ætlum við að gera eitthvað annað en að synda. Við ætlum í fjallgöngu !!

 

Gengið verður á Þorbjörn og að göngunni lokinni þá ætlum við að gæða okkur á heitri súpu og brauði. Hittingur fyrir brottför er við Íþróttahúsið í Innri Njarðvík kl. 17:00. Foreldrar eru beðnir um að mæta og skutla/ eða skipta með sér að skutla börnunum á staðinn og jafnvel ganga með okkur.

 

Engin sundæfing er þennan dag og áætlum við að koma heim aftur kl. 18.30 – 19:00 í Íþróttahúsið i Innri Njarðvík. Kostnaður á barn er 300- kr sem greiðist á staðnum.

 

Munið eftir að vera vel klædd til útivistar.

 

Áfram ÍRB                                           Kveðja, þjálfarar