Fréttir

Fjölnismót um helgina
Sund | 26. febrúar 2014

Fjölnismót um helgina

Um helgina keppa margir sundmenn ÍRB á Vormóti Fjölnis í Laugardalslaug. Mótið er í þremur hlutum, einum á föstudag og tveimur á laugardag. Nánari upplýsingar um mótið og tímasetningar verður að finna á heimasíðu Fjölnis: http://fjolnir.is/sund/atburdir/vormot.dot

Efstu hóparnir okkar ætla að takast á við áskorun sem þau kalla Katinsku áskorunina. Það þýðir að þau ætla að keppa í öllum greinum mótisins og í áskoruninnni felst að synda þær allar af sinni allra bestu getu og með anda sigurvegara eins og Katinka gerði á Euromeet. Fyrir skemmstu voru margir þessara sundmanna einmitt á Euromeet og vakti hún mikla aðdáun þeirra. Á myndinni má sjá Katinku með Guðrúnu og Sunnevu, tveimur sundmönnum ÍRB á Euromeet.