Fréttir

Fjör hjá sundskólanum Heiðarskóla
Sund | 6. júní 2013

Fjör hjá sundskólanum Heiðarskóla

Gullfiskar, Silungar og Laxar hittust uppá Ásbrú þar sem allir léku sér saman á frábæru leiksvæði sem er innandyra og er ætlað fyrir krakka. Góð mæting var og þótti þetta ótrúlega spennandi. Krakkarnir léku í stórum klifurgrindum, rennibrautum og svo var einnig þarna lítill hoppukastali. Ein mamman í hópnum hafði bakað snúða en krakkarnir komu hver með sinn ávöxt og eitthvað gott að drekka. Þeim fannst þetta alveg frábært,  að hittast og  fá að leika sér saman fyrir utan sundlaugina.