Sund | 18. nóvember 2010
Fjör í Vatnaveröldinni
Það var líf og fjör í Vatnaveröldinni á sl. mánudag þegar allir krakkar í Síla og Sæhestahópum komu þar og léku sér. Vatnaveröldin hreinlega fylltist af hressum börnum og gleði og ánægja ríkti í andlitum barnanna. Greinilegt að við eigum nóg af sundfólki og framtíðin er björt. Skemmtileg stund sem við endurtökum aftur í vetur.