Flottur æfingadagur hjá ungum sundkrökkum
Síðasta laugardag var haldinn flottur æfingadagur fyrir unga sundmenn í þeim tilgangi að undirbúa þau fyrir mótið næstu helgi.
Markmiðin voru tvö. 1) Að verða örugg í 50 m lauginni 2) Að læra að bíða eftir startinu.
Þjálfararnir Hjördís, Helga, Ólöf og Anthony sáu um æfingadaginn sem gekk mjög vel.
Allir krakkarnir prófuðu að keppa í 50 m grein og fengu svo leiktíma í lokin í Vatnaveröld.
Takk allir sem komu!