Fréttir

Sund | 13. september 2011

Foreldrafundur fyrir yngri hópa í sundi annað kvöld

Foreldrafundur yngri hópa í sundi verður haldinn miðvikudaginn 14. september kl. 19:30 í Íþróttaakademíunni. Á fundinum munu þjálfarar og stjórn sundráðs ÍRB meðal annars ræða um æfinga- og mótafyrirkomulag á nýhöfnu sundtímabili. Mikilvægt er að allir sundmenn eigi fulltrúa á fundinum.