Fréttir

Sund | 20. september 2010

Foreldrafundur hjá tveimur elstu sundhópunum

Fundur fyrir foreldra sundmanna í Afrekshóp og Framtíðarhóp ÍRB fer fram í Holtaskóla miðvikudaginn 22. september kl. 20:30.  Rætt verður um æfinga- og mótafyrirkomulagið í vetur og annað sem skiptir máli á nýhöfnu sundtímabili.  Klemenz Sæmundsson næringarfræðingur flytur stuttan fyrirlestur um næringu íþróttamanna.  Nauðsynlegt er að allir sundmenn eigi fulltrúa á fundinum.