Fréttir

Sund | 23. september 2010

Foreldrafundur yngri hópa í sundi 28. september kl. 19.30 í Íþróttaakademíunni

Þriðjudaginn 28. september kl. 19.30 verður foreldrafundur allra yngri hópa ÍRB þ.e. fyrir foreldra barna í Sæhestum, Sílum, Selum, Höfrungum og Hákörlum.

Fundurinn fer fram í Íþróttaakademíunni.  Nauðsynlegt er að allir sundmenn eigi fulltrúa á fundinum.

Farið verður yfir dagskrá vetrarins, hægt verður að panta ÍRB galla og til sölu verður Ferilbók fyrir sundmenn (250 kr.) og sundhettur merktar ÍRB (500 kr.)