Fréttir

Frábær byrjun á nýju ári á RIG-margir bestu tímar!
Sund | 29. janúar 2013

Frábær byrjun á nýju ári á RIG-margir bestu tímar!

Síðasta helgi var mjög árangursrík hjá sundmönnum ÍRB á fyrsta stóra mótinu í 50 m laug á tímabilinu. Hlutfall bestu tíma var ótrúlega hátt og okkar fólk var að synda mjög vel miðað við að jólafrí er nýbúið og æfingar nýlega komnar aftur í fullan gang. Margir unnu til verðlauna, sérstaklega í yngri aldurshópnum. Á þessu móti voru margir að keppa í greinum sem þeir keppa ekki oft í og stóðu sig með prýði. Úrslit okkar sundmanna og framfarir má sjá í þessu skjali: Úrslit RIG.