Fréttir

Frábær sundhelgi að baki
Sund | 1. október 2012

Frábær sundhelgi að baki

 

Sæl og blessuð öll.

Þvílík sundhelgi sem ÍRB átti um síðustu helgi! Hjá yngri sundmönnum voru mjög miklar bætingar og margir að fá tíma í sumum greinum í fyrsta sinn. Hjá eldri sundmönnum sáust greinileg merki um að staðan er góð núna þegar 6 vikur eru í íM25. Mjög traustir tímar.

Vinsamlegast skoðið úrslitin vandlega þar sem við tókum eftir því að sumir tímarnir sem skráðir voru á sundmenn voru ekki eins og þeir sem við sendum heldur voru umreiknaðir svo það kemur út eins og sumir hafi ekki bætt tíma sinn eins mikið og þeir í raun gerðu.

Í þessum skjölum (sjá efstu tvö á síðunni-linkur hér fyrir neðan) þar sem úrslit okkar sundmanna eru tekin saman er hægt að sjá hversu miklar framfarirnar voru. Mínus framan við töluna lengst til hægri þýðir að sundmaðurinn bætti sig um jafn margar sekúndur og talan sýnir. Ef sundmaður synti í fyrsta sinn í einhverri grein kemur engin tala.

Takk fyrir frábæra helgi.

ÍRB liðið

http://www.keflavik.is/sund/keppni/urslit-sundmanna-irb/