Fréttir

Frábært Landsbankamót
Sund | 13. maí 2015

Frábært Landsbankamót

 

Frábær Landsbankamótshelgi er nú að baki og það er svolítið eins og dejavu að segja þetta en það er samt alveg satt. Hundruð sjálfboðaliða stóðu þétt saman við það að púsla saman einu stærsta sundmóti ársins. Hvaða annað mót býður upp á tvær mismunandi brautarlengdir, sjóræningjaleik, bíóferðir, gistingu, mat, sjoppu og allar keppnisgreinar? Þetta allt væri ekki hægt án þrotlausrar vinnu margra.  Bestu og innilegustu þakkir til allra sem komu að þessu.

 

Í ár voru meira en 1700 stungur og meira en þúsund bætingarborðar gefnir. Frábært fyrir alla þessa sundmenn að fá tækifæri til að sjá alla vinnuna borga sig. Á mótinu voru 16 Landsbakamótsmet slegin svo þau eru alltaf að verða betri og betri. Til viðbótar voru 14 ÍRB met bætt á mótinu.

 

Á föstudeginum syntu yngstu sundmennirnir og stóðu þau sig afar vel. Litlu krakkarnir fengu að njóta þess að sjá sundmenn úr efsta hópnum synda sýnisund. Í ár var það 100 flug hjá strákunum og 100 bak hjá stelpunum og voru flestir í þessum hópi að bæta tímana sína. Að lokum skelltu krakkarnir sér í fjörugan sjóræningjaleik sem var stýrt af elstu sundmönnunum. 

 

Í bæði 12 ára og yngri og 13 ára og eldri stóðu ÍRB krakkarnir sig mjög vel í lauginni og í að næla sér í verðlaun. Eitt af markmiðum mótsins var að styrkja AMÍ liðið enn frekar. Því markmiði var náð og nú þurfa allir sem þangað eru að fara að einbeita sér vel í undirbúningnum til þess að vera tilbúin fyrir keppni í stærstu liðakeppni ársins.

 

Á laugardeginum skrifuðu Sigurbjörg Róbertsdóttir formaður sundráðs ÍRB og Einar Hannesson útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ undir styrktarsamning en Landsbankinn er stærsti styrktaraðili okkar. Kærar þakkir!

Mörg hundruð myndir voru teknar á mótinu og þar má sjá hve mikið var að gerast. Myndirnar er hægt að skoða á facebooksíðu Sundráðs ÍRB. Endilega kíkið á þær!

 

Takk fyrir enn og aftur þið sem tókuð þátt á þessari frábæru helgi, vel gert líka hjá krökkunum sem voru að synda.

 

Úrslit og met hér fyrir neðan. 

 

Úrslit

Sýning á föstudegi

8 ára og yngri föstudagur

12 ára og yngri laugardagur og sunnudagur

13 ára og eldri laugardagur og sunnudagur

 

Ný met:

Landsbankamót sýning á föstudegi

 

Eydís Ósk Kolbeinsdóttir             100 Bak (25m)           Konur-Njarðvík

Eydís Ósk Kolbeinsdóttir             100 Bak (25m)           Stúlkur-Njarðvík

 

Landsbankamót 8 ára og yngri

 

Katla María Brynjarsdóttir           25 Bak (25m)             Snótir-Njarðvík

 

Landsbankamót 12 ára og yngri

 

Bergþóra Sif Árnadóttir                100 Skrið (25m)         Hnátur-Njarðvík

Eva Margrét Falsdóttir                200 Skrið (25m)         Hnátur-ÍRB

Eva Margrét Falsdóttir                200 Skrið (25m)         Hnátur-Keflavík

Eva Margrét Falsdóttir                200 Flug (25m)          Hnátur-ÍRB

Eva Margrét Falsdóttir                200 Flug (25m)          Hnátur-Keflavík

Eva Margrét Falsdóttir                400 Fjór (25m)           Hnátur-ÍRB

Eva Margrét Falsdóttir                400 Fjór (25m)           Hnátur-Keflavík

Katla María Brynjarsdóttir           50 Bak (25m)             Snótir-Njarðvík

Katla María Brynjarsdóttir           100 Bak (25m)           Snótir-Njarðvík

 

Landsbankamót 13 ára og eldri

Sunneva Dögg Friðriksdóttir       100 Bak (50m)           Konur-Njarðvík

Sunneva Dögg Friðriksdóttir       100 Bak (50m)           Stúlkur-Njarðvík