Fréttir

Sund | 15. febrúar 2010

Fundur vegna æfingaferðar í sumar

Þriðjudaginn 16. febrúar kl. 20 í K – húsinu við Hringbraut

Ágætu foreldrar/forráðamenn

Fundur vegna fyrirhugaðrar æfingaferðar ÍRB í lok júlí næstkomandi verður haldinn í K – húsinu við Hringbraut þriðjudaginn 16. febrúar kl. 20.

Nauðsynlegt er að allir sundmenn sem fæddir eru árið 1998 og fyrr eigi fulltrúa á fundinum því taka þarf mikilvægar (vonandi endanlegar) ákvarðanir sem varða kostnað og æfingastað.

 

Sundkveðjur,  stjórn og þjálfarar.