Fundur vegna Akranesleika
Helgina 1.-3. júní verða Akranesleikarnir haldnir. Mótið er ætlað Háhyrningum, Sverðfiskum og þeim Flugfiskum sem kjósa að fara.
Foreldrafundur vegna ferðarinnar verður 23. maí kl. 19 í Félagsheimili Keflavíkur í Íþróttahúsinu við Sunnubraut 2.hæð.
Mikilvægt að allir sundmenn sem ætla á mótið eigi fulltrúa á fundinum.
Bréf um mótið og fundinn hefur verið sent í tölvupósti til foreldra.