Fréttir

Sund | 14. september 2010

Fyrsta mót sundársins um næstu helgi

Afreks- og Framtíðarhópur ÍRB fara á sitt fyrsta mót á sundárinu um næstu helgi, þ.e. 17. - 18. september.  Mótið heitið Haust -og langsundsmót Ármanns og er haldið í Laugardalslaug, Reykjavík.  Líkt og fyrri daginn höldum við af stað með það í farteskinu að standa okkur virkilega vel.  Munið að mæta með tilheyrandi ÍRB fatnað, við ætlum að  vera í vínrauða bolnum á föstudaginn og hvíta bolnum á laugardaginn. Foreldrar sjá um að koma sundmönnum til og frá keppnisstað.

Tímasetningar:

Föstudagur: 1.hluti 12 ára og yngri, opinn flokkur upphitun 15:30-  keppni 16:30

Laugardagur: 2.hluti  13 ára og eldri   upphitun 08:10 - keppni 09:00

Laugardagur: 3.hluti  12 ára og yngri  upphitun 11:30 - keppni 12:30 

Laugardagur: 4.hluti  13 ára og eldri   upphitun 14:30 - keppni 15:30