Fréttir

Fyrsta sundmótið í langan tíma
Sund | 9. febrúar 2021

Fyrsta sundmótið í langan tíma

Það var mikill kraftur í sundfólki ÍRB á RIG, en þetta var fyrsta opna sundmótið sem haldið hefur verið síðan í júlí.                      

Miklar bætingar og stórgóður árangur hjá sundfólkinu. Fannar Snævar Hauksson vann sigur í 200 og 100 flugsundi. Þar náði hann lágmörkum inn í unglingalandsliðshóp SSÍ. Katla María Brynjarsdóttir náði lágmörkum inn í Framtíðarhóp SSÍ þegar hún kom þriðja í mark í 800m skriðsundi.

Bestum árangri náðu þau Már Gunnarson og Eva Margrét Falsdóttir.  Már setti þrjú Íslandsmet um helgina eitt í 50m baksundi og tvö í 200m baksundi. Góð staðfesting fyrir hann á forminu, en Már stefnir á góðan árangur á Ólympíuleikunum í sumar.                                 

Eva Margrét Falsdóttir kom langfyrst í mark í tveimur greinum. 400m fjórsundi og 200m bringusundi og í þeim greinum náði hún lágmörkum á Evrópumeistaramót unglinga (EMU). Hún var einnig hársbreidd frá EMU lágmarki í 400m skriðsundi sem var aukagrein hjá henni þar sem endaði önnur eftir mjög spennandi keppni. Eva Margrét varð jafnframt fjórði stigahæsti sundmaður Reykjavíkurleikana í sundi.

Frábær árangur hjá sundfólkinu sem hefur nýtt tímann til æfinga vel.  Loksins komið að móti og allt að færast nær eðlilegra horfi.