Fréttir

Sund | 18. september 2010

Góð byrjun á sundtímabilinu

Sundmenn úr tveimur elstu hópum ÍRB tóku þátt í Haustmóti Ármanns núna um helgina en þetta mót markar upphaf sundtímabilsins.  Okkar ágætu sundmenn stóðu sig vel en þeir voru í flestum tilfellum að keppa í greinum sem þeir keppa sárasjaldan í.  Þrátt fyrir það höluðu þeir inn verðlaunum og bættu sína fyrri tíma í langflestum tilfellum.  Næsta verkefni ÍRB liða er þátttaka á TYR móti Ægis sem fram fer eftir hálfan mánuð. Myndir frá mótinu eru komnar á síðuna.

 

Hér er hægt að skoða árangur sundmanna ÍRB á mótinu.