Fréttir

Góð mæting á Langsundsmót
Sund | 14. febrúar 2015

Góð mæting á Langsundsmót

Í mótun sundmanna er ekki aðeins mikilvægt að kenna þeim að vera snöggir, þeir verða einnig að þjálfa þolið. Langar greinar reyna bæði á hugann og líkamlegt ástand.

Við veitum sundmönnum tækifæri á hverju ári til þess að bæta sig enn frekar í langsundi.

Það var frábært að sjá hve margir tóku þátt og einnig góðar bætingar hjá mörgum og nokkur afbragðs góð sund.

Eva Margrét náði einu metunum sem slegin voru á mótinu þegar hún bætti ÍRB og Keflavíkurmetið Hnátuflokki í 400 og 800 m skriðsundi.

Til hamingju allir sem lögðu sig fram við langsundið.

Úrslit

Met á Langsundsmóti

Eva Margrét Falsdóttir                400 Skrið (50m)         Hnátur-ÍRB
Eva Margrét Falsdóttir                400 Skrið (50m)         Hnátur-Keflavík
Eva Margrét Falsdóttir                800 Skrið (50m)         Hnátur-ÍRB
Eva Margrét Falsdóttir                800 Skrið (50m)         Hnátur-Keflavík