Fréttir

Sund | 12. nóvember 2011

Góðum laugardegi á ÍM25 lokið

Laugardagurinn var góður á ÍM25. Jóna Helena Bjarnadóttir varð önnur í 400m fjórsundi og Ólöf Edda varð þriðja.  Þá setti Baldvin nýtt íslenskt drengjamet í 400m fjórsundi og varð annar í greininni og var aðeins 18/100 frá því að hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Í 100m bringusundi komust þær Ólöf Edda og Jóna Helena á verðlaunapall, Ólöf varð önnur og Jóna Helena varð þriðja. Þá nældi Gunnar Örn sér í 2. sætið í 100m bringusundi.
Nokkur innanfélagsmet féllu líka í dag. Jóna Helena bætti Keflavíkurmet í 400m fjórsundi kvenna, Baldvin bætti ÍRB met drengja í 400m fjórsundi og 50m flugsundi, Jóhanna sló bæði stúlku og konumet ÍRB í 100m baksundi.
Góður dagur í dag. Meðfylgjandi mynd er tekin þegar sundmennirnir klæddust Toga klæðnaði en það var þema liðsins á föstudagskvöldið.