Fréttir

Sund | 12. apríl 2011

Góður árangur á langsundsmóti ÍRB

Góður árangur náðist á langsundsmóti ÍRB sem fram fór mánudagskvöldið 11. apríl.  Ólöf Edda Eðvarðsdóttir bætti Íslandsmetið í telpnaflokki í 1500 metra skriðsundi og þá að sjálfsögðu ÍRB og Keflavíkurmetið í leiðinni.  Jóna Helena Bjarnadóttir synti 1500 metra á mjög góðum tíma og setti  ÍRB og Keflavíkurmet í kvennaflokki.  Aleksandra Wasilewska hefur verið í mikilli framför undanfarna mánuði og hélt áfram á þeirri braut í gær þegar hún setti ÍRB og Keflavíkurmet í stúlknaflokki.  Jón Ágúst Guðmundsson var sterkur í 800 metra skriðsundi þar sem hann bætti Keflavíkurmetið.  Að lokum átti synti Guðrún Eir Jónsdóttir flott 800 metra skriðsund og setti Njarðvíkurmet.