Fréttir

Góður árangur á SH mótinu
Sund | 8. apríl 2016

Góður árangur á SH mótinu

Góður árangur náðist á Actavismóti  SH um síðustu helgi.  Þrátt fyrir mikið æfingaálag þá var útkoman 
 
góð.  Peningaverðlaun voru veitt fyrir besta árangur karla og kvenna samkvæmt alþjóðlegri stigatöflu. 
 
Okkar fólki stóð aldeilis framarlega þar, Sunneva Dögg Friðriksdóttir var stigahæst kvenna á mótinu 
 
og Eydís Ósk Kolbeinsdóttir var þar í öðru sæti, Kristófer Sigurðsson var síðan í fimmta sæti í 
 
karlaflokki.  Árangur stúlknanna var eftirtektarverður yfir heildina ,  en Sunneva Dögg  var með besta 
 
afrek bæði karla og kvenna og Eydís Ósk var þar með þriðja besta árangurinn. Liðið okkar var með 
 
næst flest verðlaun á mótinu þrátt fyrir að keppa í fáum greinum. Aftur á móti vann sundfólkið til 
 
verðlauna í nánast öllum þeim greinum sem þau voru skráð í.