Góður árangur í sundi.
Góður árangur náðist á Ægir International sundmótinu sem fram fór í Laugardal nú um helgina. Hæst bar árangur Erlu Daggar Haraldsdóttir í 200m fjórsundi 2.21.53 þar sem hún var eingöngu 0.89 frá því að ná lágmörkum fyrir HM í sundi sem fram fer í Ástralíu í mars. Erla Dögg bætti mótsmetið í þessari grein um tæplega 7 sekúndur og fyrri árangur um tæplega 3 sekúndur með þessu frábæra sundi en þetta er næstbesti tími sögunnar hjá íslenskri sundkonu. Þetta sund var fimmta besta afrek mótsins og hlaut hún sérstök verðlaun í lok móts fyrir þennan árangur en eingöngu Jakob Jóhann Sveinsson og erlendu keppendurnir voru stigahærri. Lið ÍRB sem heild sýndi flottan árangur og voru margir okkar sundmenn að komast í úrslit og vinna til verðlauna á mjög góðum tímum bæði í yngri og eldri flokkunum. Gunnar Örn Arnarson náði lágmörkum fyrir alþjóðlegt unglingamót í Luxemborg nú í apríl og Margrét Lilja Margeirsdóttir náði lágmörkum inní æfingahópa SSÍ. Flott helgi hjá sundfólkinu okkar sem greinilega er á réttri leið fyrir íslandsmótið í 50m laug í mars