Fréttir

Sund | 25. ágúst 2011

Greiðsla æfingargjalda

Þegar iðkendur eru skráðir í sund hjá Sunddeild Keflavíkur er nú eingöngu hægt að velja að greiða með kreditkorti. Við biðjum þá foreldra sem vilja semja um að millifæra eða greiða á annan hátt að hafa samband við okkur þegar þeir hafa skráð sundmanninn inn í kerfið. Við hvetjum þó alla til að nota kreditkort það einfaldar alla umsýslu og er öruggur greiðslumáti.

Vegna æfingargjalda er hægt er að hafa samband við Hjördísi Kristinsdóttur, hjordiskrist@gmail.com og símanúmer hennar er 8460621

Við minnum líka á að allir nýir meðlimir eru beðnir um að mæta á prufuæfingu áður en þeir skrá sig í sund. Prufuæfingin er alla miðvikudaga kl. 14:30-15:30 í Vatnaveröld, grynnri endanum í innilauginni.