Sund | 2. desember 2006
Guðni Emilsson vann bronsverðlaun í sundi á NMU.
Guðni Emilsson sundmaður var nú í þessu að vinna til bronsverðlauna í 200m bringusundi á Norðurlandameistarmóti Unglinga sem fram fer í Finnlandi nú um helgina. Guðni synti á mjög góðum tíma 2.17.25 og bætti tímann sinn síðan á IM 25 um eina og hálfa sek. Til hamingju Guðni frábært ! Davíð Hildiberg var alveg við sinn tíma í 50m baksundi og er í góðum gír fyrir seinni hluta keppnisdagsins. Rakel Gunnlaugsdóttir sundkona af Akranesi vann einnig til bronsverðlauna í morgun. Til hamingju Rakel. Þeir félagar Guðni og Davíð synda þessar greinar eftir hádegi: Guðni 50 bringu og 50 skrið og Davíð 100 bak. Áfram Ísland. Þjálfarar og Stjórn.