Gull og silfur í bikarkeppni
Gull og Silfur í Bikarkeppni Sundsambandsins
Bikarkeppni Sundsambands Íslands fór fram í Laugardalslauginni um síðustu helgi. Öflugt og fjölmennt lið ÍRB átti kvennalið bæði í 1. og annari deild og karlalið í 1. Deildinni.
Keppnin í 1. deild kvenna var æsispennandi en lokaniðurstaðan varð sú að annað sætið var hlutskipti ÍRB aðeins 379 stigum á eftir SH eftir hörkukeppni . Karlalið ÍRB lenti í fjórða sæti í karlaflokki, en liðið er mjög ungt að árum og þar er mikil endurnýjun í gangi.
Þrátt fyrir að íslandsmeistaramótinu í 25m laug sé nýlokið og álagið sé mikið, þá var talsvert um bætingar, og mörg góð sund hjá sundfólki ÍRB.
Lokastaðan í 1. deild karla og kvenna var því þessi.
Kvennalið Karlalið
SH 15121 SH 15353
ÍRB 14742 ÍBR 13537
ÍBR 12191 UMSK 13180
UMSK 12190 ÍRB 12195
Akranes 10070 Akranes 8975
Silfurlið ÍRB kvenna í Bikarkeppni SSÍ 2015 1. deild.
Í 2. deildinni var b- kvennalið ÍRB hinsvegar með algjöra yfirburði og vann með talsverðum yfirburðum. Frábær helgi hjá sundfólkinu okkar í Reykjanesbæ.
Lokastaðan í 2. deild kvenna var eftirfarandi.
Kvennalið
ÍRB 10913
SH 9598
ÍBR 9139
UMFB - Vestri 3376
Sundfélagið Ægir 1191
Sigurlið ÍRB kvenna í Bikarkeppni SSÍ 2015 2. deild.