Fréttir

Sund | 13. febrúar 2008

Gullmót KR

Gullmót KR 15. – 17. febrúar.

Kæru sundmenn og foreldrar

Þá er komið að KR- mótinu, Búist er við að hver mótshluti taki u.þ.b. 3 og ½  -  4 klst. þannig að  sundmennirnir þurfa að vera með mikið og gott nesti meðferðis. 

Munið eftir að hafa vínrauða ÍRB fatnaðinn með,  það er skylda að vera í  ÍRB fatnaði ef þið komist á verðlaunapall!!.

Einnig er skylda að nota ÍRB sundhettur á mótinu. Mótið er stigakeppni félaga, ÍRB hefur sigrað í stigakeppnina síðan 2002 og við höfum fullan hug á að halda  þessum bikar áfram í Reykjanesbæ. Því leggjumst við á eitt, sundmenn, þjálfarar og foreldrar við að synda hratt og hvetja mikið til að halda bikarnum hjá ÍRB. Foreldrar koma börnum sínum til og frá keppnisstað.

Hér eru greinar og tímasetningar mótsins: http://www.kr.is/sund/upload/files/sunddeild/gullmot/2008/timaaaetlun_8-10_brautir.doc

 

Aukasund á KR SC
8 bestu telpurnar og drengirnir og 8 bestu sveinarnir og meyjaranar keppa einnig til úrslita í einum úrslitariðli um kvöldið. Undanrásir á föstudagskvöldi 
Frír aðgangur er inn á KR SC mótið á laugardagskvöldinu.

 

 Verðlaunaveitingar / verðlaunafé

Keppt verður í 86 greinum í  aldursflokkunum 10- 12 ára 13- 14 ára 15 ára og eldri, verðlaun verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti í öllum greinum, auk þess fá allir hnokkar og hnátur  þátttökuverðlaun. Einnig verða greidd sérstök verðlaun fyrir landsmet og fyrsta mótsmet sundmanns sem sett verða á mótinu.

  • Landsmet: 15.000  
  • 3 stigahæstu einstaklingarnir fyrir 3 bestu sundin 1. sæti 20.000 2. sæti 10.000 3. sæti 5.000
  • Mótsmet: besti tími í grein óhað aldri: 5.000 kr
  • Aldursflokka mótsmet sérstök verðlaun
  • Riðlaverðlaun eru veitt i öllum greinum
  • Meðan á  KR SC  stendur verða dregnir út nokkrir góðir happdrættisvinningar

Greinar

Á föstudag verður keppt í opnum flokki í öllum 50 metra greinum og auk þess 800 m. skrið kvenna og 1500 m skrið karla. Synt verður í 50 metra braut alla mótshelgina. Á mótinu verður ræst yfir höfuð.

 

Hér er hægt að nálgast þær greinar sem verða synntar á mótinu ásamt áætlun á tímasetningu mótshluta. 

 Athugið að piltar og stúlkur (f. 1991, 1992 og 1993) keppa í opnum flokki karla og kvenna.


 

Áætlanir.

15. ferbrúar.

 1. mótshluti       upphitun  kl. 15.30 keppni 16.30 – 20.00  Opinn flokkur.

16. febrúar.

 2. mótshluti      upphitun           kl. 07:30          keppni kl  08:30 – 11:45          13 ára og eldri.

 3. mótshluti      upphitun           kl. 12:00          keppni kl. 13:00 – 15:00          12 ára og yngri.

 4. mótshluti      upphitun           kl. 15.00          keppni kl. 16.15 – 18.30          13 ára og eldri.

 

KR Super Challenge                 kl. 19.45 - 21.00    Úrslitasund frá föstudagskvöldi. 17. febrúar i 50 m flugsundi 

 5. mótshluti     upphitun           kl. 08.00          keppni  kl.   9.00  – 13.00          13 ára og eldri

 6. mótshluti     upphitun           kl. 13.00          keppni  kl. 14.00  – 17.00          12 ára og yngri

     

Stigakeppni  sundfélaga
Keppt verður um stigabikar í félagakeppni. Keppendur í hnokka- og hnátuflokki fá 1 stig fyrir hvert löglegt sund. Í öðrum aldursflokkum verða gefin stig fyrir fyrstu 10 sætin á eftirfarandi hátt 12-10-8-7-6-5-4-3-2-1. Stig fyrir boðsund verða tvöfalt hærri. Aðeins ein sveit í hverjum aldursflokki getur synt til stiga frá hverju félagi og skal það vera A-sveit félagsins. Athugið að piltar og stúlkur keppa í opnum flokki karla og kvenna og fá aðeins stig fyrir félag sitt fyrir árangur hinum opna flokki. Í 50 m greinunum á föstudegi er stigakeppnin i einum aldursflokki, opnum flokki. Veitt verða stig fyrir 10 efstu sætin í greinum föstudagsins, opnir flokkar 
Stigakeppni  einstaklinga
Verðlaun verða veitt fyrir þrjá stigahæstu einstaklingana í eftirtöldum aldursflokkum 17ára og eldri, pilta og stúlkna, drengja og telpna, sveina og meyja fyrir samanlögð stig í þremur greinum samkvæmt ISP stigatöflu.

Sundkveða !  Steindór og Eddi !