Fréttir

Gunnhildur sundmaður mánaðarins í Keppnishóp
Sund | 21. júlí 2013

Gunnhildur sundmaður mánaðarins í Keppnishóp

Sundmaður júlímánaðar í Keppnishópi er Gunnhildur Björg Baldursdóttir. Á myndinni er hún á verlaunapalli AMÍ að vinna gull í 100 flug.

1) Hve lengi hefur þú stundað sund?

Ég fór í ungbarnasund og byrjaði svo að æfa í fyrsta bekk.

2) Hve margar æfingar stefnir þú á að ná á viku núna?
6-7.

3) Hvaða aðrar æfingar stundar þú til þess að hjálpa þér í sundinu?

Thera band, þrek og teygi öðru hvoru.

4) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu 6 mánuði?

Komast í landsliðshóp.

5) Hvaða markmiði ert þú að vinna að fyrir næstu tvö ár?

Komast í landsliðsverkefni.

6) Hver er besta upplifun sem þú hefur átt með sundliðinu?

Klárlega Danmerkurferðin.

7) Hvaða mót sem þú hefur farið á heldur þú mest upp á?

AMÍ.

8) Hvaða sund eða annan árangur hefur þú verið ánægðust með?

200 fl, Þegar ég vann gull á AMÍ.

9) Hverjar eru uppáhalds greinarnar þínar?

100 og 200 fl

10) Hvað fær þig til þess að vakna á morgnanna og mæta á æfingu?

Mamma og pabbi vekja mig en ég fer fram úr til þess að vera betri.

11) Til hvaða sundmanna lítur þú mest upp til?

Ég lít mjög upp til Ruta Melutyte.

12) Til hverja utan við sundið lítur þú mest upp til?


Foreldra minna.

13) Hvert í heiminum langar þig mest til þess að ferðast?


Afríku.

14) Er eitthvað annað en sund sem þú hefur ástríðu fyrir?


Vera með fjölskyldu og vinum.

15) Hver er uppáhalds bókin þín og bíómynd?


Bók: Ertu guð afi ? og Bíómynd: Pitch perfect.

16) Hvert er uppáhalds nammið þitt?

Ekkert er betra en myntu pipp.

17) Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í einu orði?


Flippuð.

18) Hver er uppáhalds teiknimyndapersónan þín, úr bókum, sjónvarpsþáttum eða bíómyndum?
Ábyggilega hann Lúlli úr ísöld.