Fréttir

Háhyrningar og Sverðfiskar úr Vatnaveröld í skemmtiferð
Sund | 15. maí 2013

Háhyrningar og Sverðfiskar úr Vatnaveröld í skemmtiferð

 

Sundmenn úr Háhyrningum og Sverðfiskum úr Vatnaveröldinni fóru í skemmtilega ferð í Sandgerði. Byrjað var á því að fara í leiktækin og skólahreystibrautina og síðan var farið í eltingaleik. Þegar því var lokið þá skunduðum við í sundlaugina. Byrjuðum við á því að borða nestið okkar, því næst fórum við í laugina. Þar vorum í góða stund í leikjum í lauginni og óteljandi ferðum í rennibrautinni. Veðurguðirnir voru ekki alveg hagstæðir fyrir okkur því við fengum hávaðarok, en sólin brosti allan tímann og áttum við frábæran dag í Sandgerði. Sundmennirnir voru til fyrirmyndar í hegðun og umgengi og eiga skilið mikið hrós.