Hér komum við!!! Tími til að slá í gegn ÍRB!
Loksins er komið að því, við erum með frábært, glæsilegt og sterkt 60 manna sundlið á leiðinni á AMÍ.
Sundmenn ÍRB þurfa hugrekki, staðfestu og gefst aldrei upp viðhorfið til þess að sýna úr hverju við erum gerð.
Það að vinna er ekki nóg. Við verðum að stefna á okkar allra besta í hverju sundi. Það skiptir ekki máli hve góð staðan er, eina leiðin til þess að geta sagt af sannleika að við höfum gert okkar besta er að við förum í þetta af öllum hug og gerum í alvörunni okkar allra besta.
Þjálfarar þurfa að gera sitt besta.
Foreldrar þurfa að gera sitt besta.
Sundmenn þurfa að gera sitt besta.
Aðeins það besta á öllum sviðum – ekkert annað er ásættanlegt.
Verum hluti af einhverju meiriháttar
Leggðu þitt af mörkum.
Sjáumst öll á Akureyri.