Fréttir

Hestaferð og fjör
Sund | 14. maí 2013

Hestaferð og fjör

 

Sundmenn í Sprettfiskum og Flugfiskum gerðu sér glaðan dag laugardaginn 4. maí. Farið var í heimsókn í Reiðhöllina á Mánagrund þar sem börnin fengu að fara á hestbak. Að loknum reiðtúrnum var farið í nokkra leiki. Að lokum þá enduðum við daginn með skúffuköku og djúsi. Frábær dagur hjá krökkunum sem vilja þakka þeim sem skipulögðu og hjálpuðu til við þennan dag.