Fréttir

Hjólaskautapartí Silunga
Sund | 5. desember 2013

Hjólaskautapartí Silunga

Ákveðið var að halda hjólaskautapartí fyrir krakkana og við fengum góðfúslega aðgang að hjólaskautahöllinni uppi á Ásbrú. Þar hittust bæði foreldrar og börn og gerðu sér glaðan dag. Krakkarnir höfðu ýmist með sér hjólaskauta, hjólabretti, hlaupahjól og hjól og skemmtu sér konunglega. Foreldrunum leiddist heldur ekki að sitja saman, maula sælgæti og spjalla. Þeim þótti þetta mjög skemmtilegt og spennandi.