Fréttir

Sund | 4. mars 2012

HS Orka og HS veitur – styrktaraðilar

Þessa dagana er verið að endurnýja styrktarsamninga við okkar helstu styrktaraðila ásamt því að ganga frá samningum um skilti við útisundlaugina í Vatnaveröld.
Í vikunni var skrifað undir samning við HS Orku og HS Veitur sem af rausnarskap ætla að halda áfram að vera einn af okkar helstu styrktaraðilum næsta árið.
Styrktaraðilar eins og HS Orka og HS Veitur eru mikilvægir styrktaraðilar sem gera sunddeildinni kleift að ráða hæfa þjálfara og reyna að halda æfingargjöldum í lágmarki. Þá styðja þessi fyrirtæki einnig við mótahald deildarinnar.
Takk kærlega fyrir góðan stuðning.