Fréttir

Hvatagreiðslur
Sund | 7. febrúar 2014

Hvatagreiðslur

Við minnum foreldra á að nú er hægt að sækja um hvatagreiðslur vegna barna sem æfa sund hjá ÍRB. Reykjanesbær greiðir foreldrum barna 6 - 16 ára hvatagreiðslu til niðurgreiðslu á æfingagjöldum og nemur upphæðin 10 þúsund krónum á hvert barn.  Einungis er hægt að sækja greiðslurnar rafrænt á mittreykjanes.is. Greiðslurnar gilda fyrir hvert barn  frá janúar til desember 2014. 

Til þess að nýta hvatagreiðsluna þurfa foreldrar að fara inn á mittreykjanes.is og sækja þar um greiðslurnar. Ferlið er afar einfalt og tekur stutta stund.