Fréttir

ÍM50 byrjar á föstudaginn-liðið okkar er tilbúið, er stuðningsliðið það líka?
Sund | 9. apríl 2014

ÍM50 byrjar á föstudaginn-liðið okkar er tilbúið, er stuðningsliðið það líka?

Á æfingunni síðdegis var tímataka á öllum 33 sundmönnunum í liðinu okkar og var frammistaðan mjög traustvekjandi.

Mjög mikil vinna hefur farið í undirbúning fyrir helgina.

Við hvetjum alla foreldra sterklega til þess að koma og hvetja sundmenn okkar áfram í hverjum hluta en alveg sérstaklega í úrslitahlutunum. Við erum með stærsta liðið svo við ættum að hafa stærsta stuðningsliðið líka. Krakkarnir eru allir búnir að skila sínum hluta og nú er kominn tími á okkur að styðja vel við bakið á þeim!

Upplýsingar um mótið er að finna á http://www.sundsamband.is/sundithrottir/sundmot/im-50/ og úrslit verða að öllum líkindum á meet mobile.