Fréttir

Sund | 5. apríl 2011

ÍM50 hefst á fimmtudaginn

ÍM50 hefst næstkomandi fimmtudag. Á mótinu verða 31 þáttakandi frá ÍRB, sundmenn úr Afrekshópi, Framtíðarhópi og Eldri hópi sem allir eru tilbúnir til að taka þátt í hraðri og harðri keppni. Liðið er spennt að taka á móti eldri sundmönnum Erlu Dögg, Árna og Davíð sem hafa undirbúið sig fyrir mótið í Bandaríkjunum til þess að synda með liðinu. Davíð er þegar kominn til Íslands og klárar undirbúning fyrir mótið með Afrekshópi. Liðið hefur lagt hart að sér við undirbúning fyrir þessa keppni og þó veikindi hafi herjað á alla hópana í mars þá eru allir komnir aftur í laugina og vinna að markmiðum sínum. Það verður spennandi að fylgjast með frábærri keppni, jákvæðum liðsanda og sterkum stuðningi liðsmanna ÍRB.