Fréttir

Sund | 18. apríl 2012

ÍM50 og langsundmót

ÍM50 og langsundmót
ÍRB uppskar vel á ÍM50. Í einstaklingskeppni vann liðið vann 9 gull, 3 silfur og 5 brons. Í boðsundi vann liðið gull í 4x100 fjórsunds boðsundi karla, aðeins sekúndubrotum frá Íslandsmetinu og tvö brons í viðbót annað í 4x100 fjórsunds boðsundi kvenna og í 4x100 skriðsund boðsundi karla.  Þetta var frábær árangur á sterkasta ÍM50 móti sem haldið hefur verið á Íslandi. Mótið var mun sterkara nú en á síðasta ári.
Það er mjög áhugaverð staðreynd að ÍRB náði flestum sundmönnum í úrslit þó það væri eitt af yngstu liðunum, það gefur okkur ástæðu til bjartsýni fyrir AMÍ í júní. Sundmenn ÍRB náðu 59 sinnum í úrslit á mótinu, það er þó ekki fjöldinn sem að lokum synti í úrslitunum heldur fjöldi þeirra sem náði nægilega góðum tíma um morguninn til þess að synda í úrslitum. SH var það lið sem  km næst á eftir með 53 og svo Ægir með 41 sem náði í úrslit. Ekkert annað lið náði meira en 20 sundmönnum í úrslit. Vel gert hjá liðinu.

 
 
Þeir sem unnu til verðlauna í einstaklingsgreinum voru: Davíð (3 gull, 1 brons), Erla Dögg (3 gull, 1 brons), Árni (3 gull, 1 silfur), Jóna Helena (1 brons), Jóhanna Júlía (2 silfur), Íris Ósk (2 brons). Birta María setti frábært Íslandsmet í Telpnaflokki í 800 skrið og sló gamalt met sem væntanlegur ólympíufari, Eygló Ósk átti. Aðrir sem slógu met voru: Árni, Jóna Helena, Íris Ósk og Jóhanna Júlía sem öll slógu ÍRB, Keflavíkur og  Njarðvíkurmet, Baldvin og Jón Ágúst sem slógu Keflavíkurmet og Guðrún Eir með Njarðvíkurmet.


Í ár vorum við með lið í öllum 4x100 boðsundum. Karlaliðið okkar, Davíð, Árni Már, Baldvin og Kristófer unnu sannfærandi sigur í fjórsundinu og náðu næstum því að slá Íslandsmetið en settu nýtt ÍRB met. Þeir unnu brons í skriðsundinu þar sem SH setti nýtt Íslandsmet en rétt á eftir voru bæði Ægir og strákarnir okkar! Kvennaliðið, Íris Ósk, Erla Dögg, Jóhanna Júlía og Jóna Helena slógu svo rækilega ÍRB metið í fjórsundinu og voru öruggar með bronsið en voru líka rétt á eftir liði Ægis sem sló Íslandsmetið. Í skriðsundi var liðið skipað Erlu Dögg, Erlu, Jónu Helenu og Jóhönnu og enduðu þær í fimmta sæti eftir mikla keppni.


Sundmaður mótsins hjá okkur er Árni Már (æfir í U.S.A.) fyrir frábæra vinnu og jákvæðan liðsanda. Árni var aðeins 0.01 frá sínu eigin Íslandsmeti sem hann setti í Beijing í 50 skrið og bætti hann ÍRB metið í bæði 50 og 100 bringu og náði boðstíma á Ólympíuleikana. Hann verður hraðari og hraðari með hverju árinu og við hlakkar til að sjá enn meiri árangur hjá honum! Annar sundmaður sem æfir hér heima hjá okkur á einnig skilið sérstakt hrós fyrir frammistöðu sína en það er Birta María.Birta bætti alla sína tíma en Íslandsmetið hennar í 800 skrið var meiriháttar og með því náði hún lágmörkum á Mare Nostrum, NÆM og Andorra-fyrstu landsliðsverkefnin hennar.Til hamingju Birta.


Flest FINA stig á mótinu fékk Árni Már eða 823 fyrir 100 bringu á nýju ÍRB meti og Erla Dögg með 770 stig í 50 bringu. Flest  stig af þeim sundmönnum sem æfa hér heima voru Jóna Helena með 686 stig í 800 skrið á nýju ÍRB meti og Kristófer með 668 í frábæru 400 m skriðsundi, aðeins 0.07 frá gömlu ÍRB meti sem Birkir Már á og mjög nálægt lágmörkunum fyrir Andorra. Haltu áfram að æfa svona vel Kristófer! Bæði Kristófer og Birta náðu yfir 650 FINA stig í fyrsta sinn og Íris Ósk náði í fyrsta sinn yfir 600 stig! Vel gert!


ÍM50 markaði lok lágmarkatímabilsins fyrir EM, Andorra og Mare Nostrum. Það er enn mánuður til stefnu fyrir sundmenn að ná inn á EMU og NÆM og tveir mánuðir til þess að ná lágmörkum fyrir Ólympíuleikana en þar eru bæði hefðbundin lágmörk og lágmörk fyrir boðstíma.Eftirfarandi sundmenn hafa náð lágmörkum:


Árni Már Boðstími fyrir Ólympíuleikana, EM, Mare Nostrum, Andorra
Erla Dögg  EM, Mare Nostrum, Andorra
Davið Hildiberg Mare Nostrum, Andorra
Jóhanna Júlía EMU, Mare Nostrum, Andorra
Ólöf Edda EMU, Mare Nostrum, Andorra
Birta María NÆM, Mare Nostrum, Andorra
Baldvin   Andorra
Íris Ósk  Andorra
Sunneva Dögg Andorra


Á meðan á mótinu stóð fór fram hin árlega keppni kynjanna. Þar berjast kynin harðri baráttu um okkar eftirsótta bikar! Stig eru gefin fyrir frammistöðu og bónusstig fyrir góðan liðsanda. Í ár, eins og í fyrra, var lítill munur á frammistöðustigum, aðeins munaði 100 stigum eftir 2000 stig. Í ár unnu strákarnir á góðum liðsanda og tóku bikarinn. Vel gert strákar!


 
Strax daginn eftir mótið héldum við langsundmót ÍRB til þess að nýta til fulls alla þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í æfingar fyrir ÍM50 síðustu vikur og það borgaði sig svo sannarlega. Birta María náði öðru Íslandsmeti í Telpnaflokki í 1500 skrið og bætti tíma sinn um næstum því 30 sekúndur og Sunneva Dögg var nálægt gamla metinu. Aleksandra Wasilewska bætti sitt eigið ÍRB Stúlknamet aftur og Kristófer Sigurðsson synti vel í 800 skriðog náði að bæta eldra ÍRB met í Piltaflokki sem liðsfélagi hans, Jóns Ágústs átti. Hin unga Eydís Ósk stóð sig vel og bætti Njarðvíkurmet.



Mótið byrjaði á því að Árni Már og Erla Dögg sem kepptu bæði í Beijing á Ólympíuleikunum og æfa erlendis spjölluðu við sundmennina og svöruðu spurningum um líf sundmanna, reynslu sína, hve sund getur verið erfitt en um leið gefið ýmis tækifæri til dæmis menntun á fullum skólastyrk og spennandi ferðalög. Þau bentu á að til þess að verða á meðal þeirra bestu þarf að gæta þess að hafa góðar svefnvenjur, passa að fá alltaf 8 tíma svefn á nóttu, borða vel af hollum og næringarríkum mat sérstaklega 30 mínútum eftir æfingu og að ekki gefast upp þar sem það geta komið erfið tímabil sem komast má yfir með mikilli vinnu og þolinmæði. Við þökkum þeim fyrir að koma og óskum þeim alls hins besta í undirbúningi fyrir Evrópumeistaramótið í næsta mánuði.
Liðsandinn var sterkur um helgina og við fengum góð úrslit frá öllum sundmönnum. Það er aldrei hægt að telja alla upp en liðið er í góðu standi. Bestu þakkir til foreldra sem gáfu sér tíma til þess að hjálpa til bæði með liðið og með vinnu á mótinu. Krakkarnir hefðu ekki getað þetta án ykkar!

Frábær keppnishelgi.Til hamingju lið! Höldum áfram að bæta okkur!