Fréttir

Innritun í sundhópa ÍRB 2020
Sund | 18. ágúst 2020

Innritun í sundhópa ÍRB 2020

Búið er að opna fyrir innritun á heimasíðum Keflavíkur og Njarðvíkur í alla hópa sundráðs ÍRB fyrir veturinn 2020.

Æfingar hjá hópum í Vatnaveröld eru farnar af stað en æfingar hjá öllum yngri hópum hjá Jónu Helenu í Akurskóla og Heiðarskóla hefjast þriðjudaginn 25. ágúst og hjá Hólmfríði í Akurskóla 26. ágúst. 

Nýir sundmenn mæta á prufuæfingu í Akurskóla mánudaginn 24. ágúst kl. 16:00-17:00. Þar metur Jóna Helena þjálfari hvaða hópur hentar best hverjum og einum.

Eingöngu nýir meðlimir fara á prufuæfingu.
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir eru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.

Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Akurskóla
Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, S: 849-0222 netfang: jonahelena@gmail.com

Sundskólahóparnir Gullfiskar og Silungar raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Löxum og upp er raðað eftir getu. 

Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú hér  gjaldskrána, æfingartöflur og upplýsingar um æfingahópana okkar.

Gjaldkerar félagana veita  upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur.

Gjaldkeri Sunddeildar Keflavíkur er Lilja Dögg Karlsdóttir
GSM: 821 6379 Netfang: gjaldkeri.sk@gmail.com