Fréttir

ÍRB sýndi styrkleika sinn í aldursflokkum á Ármannsmótinu
Sund | 29. apríl 2013

ÍRB sýndi styrkleika sinn í aldursflokkum á Ármannsmótinu

 

Síðustu helgi keppti stór hluti iðkenda okkar á Ármannsmótinu í Reykjavík. Sum stóru liðanna sendu ekki fjölmennt lið á mótið en mörg lið voru þó að nota tækifærið til þess að ná lágmörkum fyrir UMÍ og AMÍ sem nálgast óðfluga. Það voru því margir af bestu yngri sundmönnum landsins að keppa á mótinu. Við komum vel út í samanburðinum við þau lið sem voru að keppa og það er góð vísbending um að við erum á réttri leið í undirbúningnum fyrir bæði þessi mót.

Það eru fá mót eftir fram að AMÍ, næsta er Landsbankamótið okkar, svo er það bara Blikamótið og Akranesleikarnir eftir það. Förum í kapp!

Úrslit af Ármannsmóti:

Einstaklingar

Boðsund