Fréttir

ÍRB sýndi yfirburði á UMÍ
Sund | 17. júní 2013

ÍRB sýndi yfirburði á UMÍ

UMÍ helgin var sigursæl fyrir sundmenn ÍRB. Lið 12 sundmanna á aldrinum 15-20 ára keppti á mótinu auk þess sem þrír yngri sundmenn, Svanfríður Steingrímsdóttir, Eydís Ósk Kolbeinsdóttir og Sylwia Sienkiewicz syntu á mótinu til þess að reyna við landsliðslágmörk.

 

ÍRB og tvö önnur lið voru með flesta keppendur en við vorum með flesta verðlaunahafa á mótinu. ÍRB vann 64 verðlaun, 27 gull, 26 silfur, 11 brons. SH var með næst flest verðlaun, 45 talsins, þar af 20 gull, 15 silfur og 10 brons þar á eftir kom Fjölnir með 30 verðlaun, 11 gull, 11 silfur og 9 brons.

 

Til viðbótar við þetta þá var ÍRB eina liðið sem náði nýjum sundmönnum í landslið og sem átti sundmann sem setti Íslandsmet á mótinu.

 

Ólöf Edda Eðvarðsdóttir vann 400 m fjórsund mjög sannfærandi og setti í leiðinni nýtt stúlknamet á tímanum 5:02.33 með 707 FINA stig. Með þessu sundi tryggði hún sér sæti á EMU sem fram fer í Póllandi í júlí. Íris Ósk Hilmarsdóttir fylgdi svo á eftir og vann auðveldlega 200 m baksund á tímanum 2:19.85 með 710 FINA stig og var rétt frá HMU lágmarkinu sem er 2:19.48. Þær stöllur munu fara ásamt Kristni Þórarinssyni úr Fjölni á EMU.

 

Svanfríður Steingrímsdóttir sýndi styrk sinn á mótinu þar sem hún synti aðeins til þess að reyna við lágmark. Hún synti á besta tímanum á mótinu í 200 m bringusundi á 2:43.94 og með 624 FINA stig og tryggði sér með því sæti á EYOF í júlí. Hún fer ásamt liðsfélögum sínum Baldvini Sigmarssyni og Sunnevu Dögg Friðriksdóttur á mótið í Hollandi en þangað fara líka Arnór Stefánsson úr SH og Bryndís Bolladóttir frá Óðni. Eydís Ósk Kolbeinsdóttir náði líka lágmarkinu á EYOF í 800 m skriðsundi en Sunneva er hraðasti sundmaðurinn á Íslandi í þessari grein og aðeins einn sundmaður fer á mótið í hverri grein. Eydís og Þröstur, sem náði líka EYOF lágmarki, verða að bíða og sjá hvort þau verði valin og vonandi fleiri úr liðinu til þess að synda á NMÆ sem haldið verður í Reykjavík í júlí.

 

Íris Óks Hilmarsdóttir vann bikarinn fyrir stigahæstu sundin í flokki 15-17 ára og Kristófer Sigurðsson vann bikarinn fyrir stigahæstu sundin í flokki 18-20 ára. Kristófer synti frábært 200 m skriðsund og náði 693 FINA stigum. Hann náði besta tíma sem var undir lágmörkunum fyrir Mare Nostrum á Spáni og Frakklandi. Hann var því miður 0.29 frá lágmarkinu á NMU í Póllandi.