Fréttir

Íris og Ólöf lagðar af stað til Póllands
Sund | 7. júlí 2013

Íris og Ólöf lagðar af stað til Póllands

Ólöf Edda og Íris Ósk lögðu af stað í dag til Póllands ásamt félaga sínum Kristni Þórarinssyni úr Fjölni til þess að taka þátt í Evrópumeistaramóti unglinga (EMU). Erfiðleikastig mótsins í ár er hátt. Til dæmis er besti tíminn í 200 bak sem skráðiur inn á mótið tími rússneskrar stelpu fædd 1998 með tíma sem er 2 sek betri (2:08) en Íslandsmetið í opnum flokki. Íris Ósk stefnir á að bæta tíma sinn og komast í undanúrslit. ÞAð er sömuleiðis rússnesk stúlka sem á besta tímann í grein Ólafar Eddu sem einnig stefnir á sæti í undanúrslitum. Sú sem á besta tíman er fædd 1998 og er skráð inn á 4:50 sem er um 4 sek betri tími en opna Íslandsmetið. Það er áhugavert að sjá að margir af hröðustu sundmönnunum á mótinu voru líka þeir bestu á EYOF (Ólympíudögum Evrópuæskunnar) fyrir tveimur árum þegar Ólöf Edda keppti þar og Anthony fór með í ferðina. Samkeppnin er álíka erfið hjá strákunum og við óskum íslensku keppendunum þremur góðs gengis, öruggrar ferðar og vonum að þau öðlist mikilvæga reynslu á mótinu. Með þeim í för er Ragnar yfirþjálfari Fjölnis.

Hér er slóðin á síðuna þar sem upplýsingar um keppendur og úrslit er að finna:

http://www.ejc2013poznan.eu/